Viðskipti
| Morgunblaðið
| 19.12.2008
| 5:30
| Uppfært
7:09
Hagnaður 400 milljónir
Þegar FS7, félag Finns Ingólfssonar, keypti fjórðungshlut í Langflugi í desember 2006 tók það einnig á sig ábyrgð á fjórðungi skulda Langflugs, sem voru um fimm milljarðar króna.
„Rétt er, sem kom fram í grein í Morgunblaðinu í gær, að FS7 greiddi einn milljarð fyrir hlutinn, en þegar tekið er tillit til skulda Langflugs fær FS7 sinn óbeina hlut í Icelandair á sama gengi og aðrir kaupendur,“ segir Finnur.
„Þegar ég sel svo hlut FS7 í ágúst 2007 er söluhagnaðurinn því tæpar 400 milljónir, en ekki einn og hálfur milljarður, eins og látið er liggja að í greininni.“
Seldi FS7 7,9% hlut sinn á genginu 32 og var söluverðið því 2,53 milljarðar króna.
„Söluhagnaðurinn var meðal annars notaður til að auka hlut FS7 í Langflugi og á FS7 nú tvo þriðju í félaginu og Gift einn þriðja. Hefur það haft þau áhrif að tapsáhætta Giftar hefur minnkað, en tapsáhætta FS7 hefur aukist frá því sem var,“ segir Finnur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















