Vilja gamla BNbanka nafnið
Höfuðstöðvar BNbank í Þrándheimi.
Þegar norsku sparisjóðasamtökin Sparebank 1 keyptu Glitni Bank í Noregi í október síðastliðnum, óskuðu samtökin eftir því að gömlu BNbank-skiltin yrðu dregin fram. Glitnir hafði fjarlægt þau þegar bankinn hafði keypt BNbank og Kredittbanken og sameinað þá í Glitni Bank. Glitnir er ekki gott merki.
Í frétt á norska vefmiðlinum adressa.no segir að Lisbet K. Nærvö, fjármálastjóri Sparebank 1 SR-Bank, hafi verið skipuð forstjóri Glitnis Bank, sem væntanlega mun fá nafnið BNbank innan tíðar. Hún tekur við starfinu hinn 12. janúar næstkomandi.
Norska fjármálaeftirlitið samþykkti kaup Sparebank 1 á Glitni Bank þann 4. desember síðastliðinn. Kaupverðið var um 300 milljónir norskra króna. Glitni keypti BNbank og Kredittbanken hins vegar á 3,4 milljarða noskra króna á sínum tíma.



















