Ekkert jafnræði hluthafa VÍS

stækka

Árni Sæberg

Morgunblaðið Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is
Ekki var jafnræði með hluthöfum VÍS þegar VÍS og Exista voru sameinuð. Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga, sem síðar varð hlutafélagið Gift, eignaðist hlut í Exista með sameiningunni. Það gerði líka Hesteyri ehf., sem var að þriðjungi í eigu Samvinnutrygginga, en aðrir eigendur Hesteyrar voru Skinney-Þinganes í eigu Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu og Fiskiðjan Skagfirðingur.

Þegar stjórn Giftar vildi minnka hlut sinn í Exista kom í ljós að það var ekki hægt, vegna samkomulags við Exista um að ekki yrði selt fyrr en 2008. Hendur Hesteyrar voru hins vegar ekki bundnar og félagið seldi sinn hlut.

Um mitt ár 2006 keypti Exista allt hlutafé VÍS eignarhaldsfélags, móðurfélags Vátryggingafélags Íslands, og greiddi fyrir með hlutum í Exista. Stærsti eigandi VÍS var Kaupþing, með 29,6%, en þá áttu Samvinnutryggingar 25,8%, Hesteyri ehf., 24,7%, Samvinnulífeyrissjóðurinn 10% og Andvaka 5,3% í VÍS.

VÍS hafði orðið til árið 1989 með sameiningu Brunabótafélags Íslands og Samvinnutrygginga. Eignarhaldsfélagið Andvaka bættist í eigendahóp VÍS þegar Lífís varð hluti af félaginu.

Andvaka var að helmingi í eigu Samvinnutrygginga, síðar Giftar, og þá áttu Samvinnutryggingar þriðjung í Hesteyri. Aðrir eigendur Hesteyrar voru Skinney-Þinganes, félag í eigu Halldórs Ásgrímssonar og fjölskyldu, og Fiskiðjan Skagfirðingur, síðar FISK Seafood. Fiskiðjan er dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, en kaupfélagsstjórinn, Þórólfur Gíslason, var jafnframt stjórnarformaður Samvinnutrygginga.

Exista átti fyrir 20% í VÍS, en verðmæti hlutafjárins, sem aðrir eigendur fengu í Exista, var metið á um 53 milljarða króna. Eftir sameiningu Exista og VÍS áttu Samvinnutryggingar 5,7% í Exista og Hesteyri átti önnur 5,7%. Andvaka átti hins vegar 1,6%. Ári síðar, í júní 2007 er tekin ákvörðun um að breyta Eignarhaldsfélaginu Samvinnutryggingum í hlutafélag, sem bera átti nafnið Gift. Eigendur yrðu tryggingatakar í Samvinnutryggingum og Brunabótafélaginu, auk sjálfseignarstofnunarinnar Samvinnusjóðsins.

Á stjórnarfundi í Gift hinn 7. nóvember var eignarhluti félagsins í Exista gerður að umtalsefni. Töldu sumir stjórnarmenn að óvarlegt væri að meira en helmingur eigna Giftar væri í Exista og hlutdeildarfélögum og var lögð fram tillaga um að eignarhlutur Giftar í þessum félögum yrði minnkaður. Samkvæmt fundargerðum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, greindi stjórnarformaðurinn, Þórólfur Gíslason, þá frá „óformlegu samkomulagi“ við Exista um að hlutur Giftar yrði ekki seldur fyrr en á árinu 2008.

Hendur Hesteyrar voru hins vegar ekki bundnar á sama hátt, en eins og áður segir á dótturfélag Kaupfélags Skagfirðinga, sem Þórólfur Gíslason stýrir, þriðjungshlut í Hesteyri. Hinn 22. desember 2006 barst tilkynning til Kauphallarinnar um að Hesteyri hefði selt 1,91% í Exista og var í fjölmiðlum talað um að sölugengið hefði verið 23. Fékk Hesteyri því 4,9 milljarða króna fyrir hlutinn. Eftir söluna átti Hesteyri 3,82% í Exista og voru viðskipti félagsins með hluti í Exista því ekki lengur tilkynningarskyld.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Í gær, 16:15 Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

Í gær, 11:04 Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
í fyrradag Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Katalónía óskar eftir aðstoð

Spánverji mótmælir á hraðbraut í Katalóníu.
25.5. Katalónía, ríkasta hérað Spánar, óskaði í dag eftir aðstoð spænska ríkisins til að greiða af lánum. Bankia, einn af stærri bönkum Spánar, var í dag tekinn út úr spænsku kauphöllinni. Lántökukostnaður Spánar er enn að hækka. Meira »

Þjóðverjar andsnúnir útgáfu evru-bréfa

Angela Merkel
25.5. Flestir Þjóðverjar eru andsnúnir útgáfu evru-bréfa sem lagt er til að gefin verði út til þess að styðja við skuldsett evru-ríki í baráttunni við skuldakreppuna. Eins er meirihluti Þjóðverjar andvígir því að Grikkland verði áfram innan evru-svæðisins. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Ferrari innkallar 56 bíla

Bifreið af gerðinni Ferrari 458 Italia.
25.5. Orðspor ítalska lúxbílaframleiðandans Ferrari hefur beðið hnekki í Kína eftir að opinberstofnun þar í landi sem fer með gæðaeftirlit lýsti því yfir í dag að bílaframleiðandinn þyrfti að innkalla 56 bifreiðar sem fluttar höfðu verið inn í landið vegna galla. Meira »

Innsýn í reksturinn

1,1 milljarðs rekstrarhagnaður hjá Eimskip

25.5. Heildarvelta samstæðu Eimskips á fyrsta ársfjórðungi ársins 2012 nam 15,3 milljörðum kr. samanborið við 14,3 milljarða kr. árið 2011. Rekstrarhagnaður (EBITDA) var 1,1 milljarður kr. , en var 2,1 milljarður kr. á sama tímabili árið 2011. Meira »

Yfirmaður öryggismála ákærður fyrir fjársvik

Lloyds Banking Group
25.5. Fyrrum yfirmaður öryggismála hjá breska bankanum Lloyds Banking Group hefur verið ákærður fyrir fjársvik fyrir 2,5 milljón punda, 507 milljónir króna. Meira »

Gæti dregið mikið úr hagvexti

25.5. Fari allt á versta veg á evrusvæðinu með uppbroti myntbandalagsins og viðvarandi efnahagslægð í Evrópu á komandi árum mun slíkt óhjákvæmilega hafa mjög skaðleg áhrif á útflutningsatvinnugreinar Íslands. Meira »

AKB48 selja ríkisskuldabréf

AKB48
25.5. Japönsk stjórnvöld hafi gripið til óvenjulegra ráða til þess að selja ríkisskuldabréf. Hafa þau fengið kvennahljómsveitina AKB48 til þess að koma fram í auglýsingum þar sem fjárfestar eru hvattir til að kaupa slík bréf. Meira »

Sparnaður eykst ekki þrátt fyrir lífeyrissjóðina

Ásgeir Daníelsson
25.5. Samhliða því að lífeyrissjóðirnir hafa vaxið á síðustu 30 árum hefur þjóðhagslegur sparnaður minnkað. Ásgeir Daníelsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands, telur hugsanlegt að tekjutrygging, sem er hluti lífeyriskerfisins hér á landi, geti skýrt minni sparnað heimilanna. Meira »

Landsbankinn að selja hlut sinn í Hampiðjunni

Hampiðjan
25.5. Landsbankinn hefur ákveðið að bjóða til sölu allan eignarhlut sinn í Hampiðjunni eða sem nemur 10,93% af útgefnu hlutafé í félaginu. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ríkisvæðing leigumarkaðarins
Ríkisstjórnin hefur kynnt úrræði á íbúðamarkaði sem eiga í senn að bæta stöðu þeirra sem basla við að eignast þak yfir höfuðið og þó ekki síður þeirra Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir