Viðskipti
| mbl
| 23.12.2008
| 15:17
Indverjar með áhuga á Whittard
mbl.is/Golli
Indverskt fjölskyldufyrirtæki, Sapat, sem framleiðar meðal annars te, hefur áhuga á að kaupa bresku te- og kaffiverslunarkeðjan Whittard of Chelsea, sem er í eigu Baugs. Frá þessu er greint í frétt á fréttavefnum TimesOnline.
Mikið hefur verið fjallað um Whittard í breskum vefmiðlum, sérstaklega í dag, en á tíma þótti stefna í að fyrirtæki yrði gjaldþrota.
Hefur TimesOnline eftir Nikhil Joshi, eiganda Sapat, að fyrirtæki hans hafi fylgst vel með Whittard. Verið sé að bíða eftir ákveðnum upplýsingum áður en kauptilboð verði lagt fram.
Whittard, sem var stofnað árið 1886, rekur alls 130 verslanir í Bretlandi. Baugur keypti fyrirtækið á 21 milljón punda árið 2005.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















