Viðskipti
| Morgunblaðið
| 23.12.2008
| 5:30
| Uppfært
6:13
Neyðarlög Alþingis réðu úrslitum um tapið
„Miðað við lög og reglur sem giltu til 6. október var áhættan mun dreifðari en í innlánum hjá einstökum banka eða sparisjóði,“ segir Stefán H. Stefánsson, sem áður var stjórnarformaður Landsvaka vegna tilkynningar viðskiptaráðuneytisins frá því í gær um að óumdeilt er að í tilteknum tilvikum hafi fjárfesting í peningamarkaðssjóði Landsbankans verið kynnt sem áhættulaus. NBI hf. og Landsvaki hafa viðurkennt að um mistök hafi verið að ræða og beðið viðskiptamenn afsökunar á þessu.
„Þar var áhættan hjá aðeins einu fyrirtæki, ef fólk átti meira en þessar þrjár milljónir sem innistæðutryggingin dugar fyrir. Og sum fyrirtækjanna hafa verið talin áhættusöm en í svona sjóði er áhættunni dreift á mörg fjármálafyrirtæki og fleiri fyrirtæki.
Neyðarlögin gerðu skuldabréf fjármálafyrirtækja afskaplega verðlítil en þau voru áður jafn- rétthá innlánum banka,“ segir Stefán en nánar er rætt við hann í Morgunblaðinu í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















