Stefnir Whittard of Chelsea í þrot?
Allt bendir til þess að te- og kaffiverslanakeðjan Whittard of Chelsea, sem er í eigu Baugs, stefni í þrot vegna fjárhagserfiðleika. Þetta kemur fram á vef BBC. Samkvæmt heimildum BBC leita eigendur keðjunnar nú að kaupanda. Alls eru reknar 130 Whittard verslanir í Bretlandi en keðjan var stofnuð árið 1886 af Walter Whittard.
Vefur Independent greinir einnig frá þessu og kemur þar fram að talsmaður Baugs hafi neitað að tjá sig um málið. Þar segir að fimm tilboð hafi borist í keðjuna en talið sé að ekkert þeirra sé nægjanlega hátt, að mati eigenda. Talið er að Baugur vilji fá 1 milljón punda fyrir keðjuna en það þyki of hátt verð. Baugur keypti Whittard árið 2005 á 21 milljón punda.
Á jóladag þarf Whittard að greiða margar milljónir punda í húsaleigu fyrir fyrsta ársfjórðung næsta árs, samkvæmt Independent.
Endurskoðunarfyrirtækið Ernst and Young hefur verið fengið til þess að taka við stjórn félagsins, ef farið verður fram á gjaldþrotaskipti, samkvæmt heimildum BBC.
Í janúar greindi breska dagblaðið Sunday Telegraph frá tapi Whittard og Julian Graves keðjunnar sem einnig er í eigu Baugs. Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs, sagðist á þeim tíma undrast frétt Sunday Telegraph þar sem blaðið hafi stuðst við gamlar tölur, um rekstrarárið 2006 til 2007 sem hafi endað í mars í síðasta ári. Í fréttinni kom fram að rekstrartap Whittard of Chelsea og Julian Graves, á síðasta ári hafi numið 8,8 milljónum punda.
Gunnar sagði í samtali við Morgunblaðið í janúar að rekstur þessara keðja hafi verið samþættur með talsverðum kostnaði en gangi nú mun betur en áður. Jólasalan hafi verið „ágæt“.




















