Viðskipti
| mbl
| 29.12.2008
| 12:27
Kom í veg fyrir sölu á Icesave
Hollenski seðlabankinn hefur komið í veg fyrir sölu á Icesave útibúi Landsbankans í Hollandi, að því er segir á vefsíðunni DutchNews.nl. Höfðu tíu hollenskir bankar lýst yfir áhuga á að kaupa Icesave, en skiptastjórinn Marinus Pannevis segir að kaupverðið hefði verið á bilinu 5-10 milljónir evra.
Alls eru um 1,6 milljarður evra í hollenskum Icesave reikningum, en kaupverðið hefði skipst á milli kröfuhafa í þrotabúi Icesave, þar á meðal innistæðueigendur með meira en 100.000 evrur á reikningum sínum. Innistæður eru aðeins tryggðar af hollenska ríkinu upp að 100.000 evrum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















