Síminn telur samning við Tal í gildi
Hermann Jónasson, fyrrverandi forstjóri Tals og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans þegar samningurinn umdeildi var undirritaður.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson - gretar@mbl.is
Síminn lítur svo á að samningur sem fyrirtækið gerði í desember síðastliðnum við þáverandi forstjóra Tals, Hermann Jónsson, sé í gildi, að sögn Sævars Freys Þráinssonar, forstjóra Símans.
„Við teljum að riftun á samningnum standist ekki,“ segir Sævar. „En við viljum hins vegar tryggja að viðskiptavinir Tals verði ekki fyrir barðinu á þeim ágreiningi sem verið hefur í hluthafahópi Tals. Þess vegna lokuðum við ekki á viðskiptavini fyrirtækisins um áramótin, eins og við hefðum getað gert, en þá væru þeir í ákveðnum tilvikum utan gsm-sambands þar sem þjónustusvæði Vodafone nær til um 70-75% landsins.“
Sagt upp vegna trúnaðarbrests
Ragnhildur Ágústsdóttir, sem tók við starfi forstjóra Tals í lok desember í kjölfar þess að fyrrverandi forstjóra, Hermanni Jónssyni, var sagt upp, segist hafa rætt við forstjóra Símans um þessi mál og þau verði útkljáð á næstu dögum. Hún segir hugsanlegt að Tal muni semja aftur við Símann. Það sé þó ekki endilega eina mögulega niðurstaðan. „Hugmyndir voru komnar fram í samræðum við Póst- og fjarskiptastofnun um lausnir. Það þarf hins vegar að klára það mál og það verður gert.“Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Tals, segir að fyrrverandi forstjóra Tals hafi verið sagt upp vegna trúnaðarbrests. Hann hafi gert samning við Símann, án samráðs við stjórn Tals, þó svo að í gildi sé fimm ára samningur við Vodafone um þjónustu, þar sem meðal annars sé kveðið á um að fyrirtækið geti ekki samið við annað símafyrirtæki á meðan samningurinn sé í gildi.



















