Viðskipti
| Morgunblaðið
| 5.1.2009
| 6:27
Óbreytt staða hjá Kaupþingi í Lúxemborg
Ekkert nýtt hefur gerst í sölunni á Kaupþingi í Lúxemborg. Að sögn Friðjóns Einarssonar, talsmanns Kaupþings þar ytra, mun ekkert gerast í sölu bankans fyrr en seinna í vikunni. „Það hefur ekkert gerst í málinu síðan fyrir jól og ég sé ekki fram á að neitt gerist fyrr en á næstu vikum. Þá ættu málin að taka að skýrast nokkuð.“
Viðræður um sölu bankans hafa lengi staðið við líbýskan fjárfestingabanka. Fullyrt hefur verið í fréttum að kaupverð bankans sé 1 evra en kaupendur þurfi að leggja 20 milljarða króna hlutafé inn í bankann. Viðskiptavinir bankans eru 23 þúsund og þeir eiga samtals um 800 milljónir evra hjá bankanum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin




















