Tryggja innistæður Kaupþings í Lúx
Fjármálaráðherra Belga mun á morgun tilkynna um stofnun sjóðs til þess að tryggja innistæður sparifjáreigenda í útibúi Kaupþings í Lúxemborg að því er segir á vef Reuters.
Stjórnvöld í Belgíu og Lúxemborg munu greiða í sjóðinn auk þess sem í hann mun renna fjármagn frá fjárfestum frá ríkjunum við Persaflóa, sem hafa í hyggju að taka yfir útibúið, að sögn talsmanns belgíska fjármálaráðherrans, Didier Reynders. Um er að ræða tillögu að stofnun sjóðs sem myndi tryggja 20,000 evrur á hvern reikning strax og síðan í apríl næstkomandi yrðu innistæðurnar tryggðar í heild sinni.
Framlag belgíska ríkisins í sjóðinn yrði ekki meira en 100 milljónir evra. Fjármálaeftirlitið í Lúxemborg fyrsti reikninga útibús Kaupþings í nóvember eftir að íslenska ríkið tók yfir rekstur Kaupþings í kjölfar hruns bankans. Um það bil 20.000 Belgar eiga innistæður í útibúinu. Í desember sl. tilkynntu stjórnvöld í Lúxemborg um sölu á útibúi Kaupþings til hóps fjárfesta frá ríkjunum við Persaflóa. Sá samningur hefur enn ekki verið staðfestur af belgíska ríkinu en ný ríkisstjórn var mynduð í landinu í síðustu viku undir forystu Herman Van Rompuy forsætisráðherra.



















