Viðskipti
| mbl
| 6.1.2009
| 17:53
8,9 milljarða velta með skuldabréf
Velta með skuldabréf í Kauphöllinni nam tæpum 8,9 milljörðum króna í dag. Velta með hlutabréf var lítil sem fyrr, aðeins 173,5 milljónir króna. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,45% og var lokagildi hennar 981,46 stig. Bréf í Bakkavör lækkuðu mest, eða um 7,32%. Alfesca lækkaði um 4,76%.
Mest voru viðskipti með hlutabréf í Össuri eða 88,9 milljónir króna og lækkuðu bréf félagsins um 0,82%. Marel var eina félagið sem hækkaði og hækkuðu bréf þess um 0,25% í viðskiptum sem námu 36,6 milljónum króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















