Viðskipti
| mbl
| 6.1.2009
| 10:01
| Uppfært
10:45
MP Banki fær bankanúmerið 700
MP Banki hefur samið um aðgang að kerfum Reiknistofu bankanna og fengið úthlutað bankanúmerinu 700. Fjármálaeftirlitið veitti bankanum viðskiptabankaleyfi hinn 10. október sl. Leyfið var í fyrstu veitt til 31. desember 2008 en bankinn hefur nú fengið staðfest leyfi.
Samhliða þessu hefur bankinn gerst aðili að stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands og jöfnunarkerfi Fjölgreiðslumiðlunar. MP Banki hf. var stofnaður árið 1999 og fékk starfsleyfi sem fjárfestingarbanki árið 2004.
Viðskiptabankaleyfið gerir MP Banka kleift að veita viðskiptavinum sínum aukna og víðtækari þjónustu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















