Viðskipti
| AP
| 7.1.2009
| 8:30
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar
Verð á hráolíu fór niður fyrir 48 dali tunnan á ný í morgun þar sem fjárfestar telja að það muni draga úr eftirspurn eftir olíu. Verð á hráolíu til afhendingar í febrúar lækkaði um 69 sent tunnan í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í morgun. Er tunnan nú seld á 47,91 dal.
Verð á hráolíu hefur hækkað um 43% frá því 19. desember er það fór í 33,87 dali tunnan sem er lægsta hráolíuverð í fimm ár. Skýrist hækkunin undanfarið einkum af óróa í Miðausturlöndum í kjölfar árása Ísraelsmanna á Gaza.
Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu um 67 sent í morgun og er 49,86 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















