Síminn kærði til Samkeppniseftirlitsins

mbl.is/Kristinn

Samkvæmt heimildum mbl.is sendi Síminn kæru til Samkeppniseftirlitsins í gær vegna ummæla stjórnarformanns Teymis, Þórdísar Sigurðardóttur, í fjölmiðlum vegna samnings milli Tals og Vodafone.

Þórdís Sigurðardóttir, stjórnarformaður Tals, sagði í samtali  við Morgunblaðið þann 3. janúar sl. að fyrrverandi forstjóra Tals hafi verið sagt upp vegna trúnaðarbrests. Hann hafi gert samning við Símann, án samráðs við stjórn Tals, þó svo að í gildi sé fimm ára samningur við Vodafone um þjónustu, þar sem meðal annars sé kveðið á um að fyrirtækið geti ekki samið við annað símafyrirtæki á meðan samningurinn sé í gildi.

Síminn lítur svo á að samningur sem fyrirtækið gerði í desember síðastliðnum við þáverandi forstjóra Tals, Hermann Jónsson, sé í gildi, að sögn Sævars Freys Þráinssonar, forstjóra Símans.

„Við teljum að riftun á samningnum standist ekki,“ segir Sævar. „En við viljum hins vegar tryggja að viðskiptavinir Tals verði ekki fyrir barðinu á þeim ágreiningi sem verið hefur í hluthafahópi Tals. Þess vegna lokuðum við ekki á viðskiptavini fyrirtækisins um áramótin, eins og við hefðum getað gert, en þá væru þeir í ákveðnum tilvikum utan gsm-sambands þar sem þjónustusvæði Vodafone nær til um 70-75% landsins,“að því er fram kom í samtali við Sævar við Morgunblaðið þann 3. janúar sl.

Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, segir að það sé ekki rétt hjá Sævari að þjónustusvæði Vodafone nái til 70-75% landsins. Hið rétta sé að það nái til um 99% landsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Arion banki.

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

Í gær, 14:39 Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er eki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankans vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

í gær Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
í fyrradag Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

í fyrradag Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
í fyrradag Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

10.2. Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
í fyrradag Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
í fyrradag Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

10.2. Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Verðbólgan 2,1% í Þýskalandi

Verðbólgan mælist 2,1% í Þýskalandi
10.2. Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 2,1% í Þýskalandi í síðasta mánuði. Er þetta sama verðbólga og mældist í Þýskalandi, stærsta hagkerfi innan evrusvæðisins, í desember. Meira »

Minni hagnaður hjá Barclays

Barclays bankinn
10.2. Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.  Meira »

Samdrátturinn 17,7%

Gríðarlegt atvinnuleysi er á Spáni og fasteignasala dræm
10.2. Fasteignasala dróst saman um 17,7% á Spáni á síðasta ári og virðist því bati á fasteignamarkaði sem sjáanlegur var árið 2010 á Spáni vera horfinn. Meira »

Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz myndskeið

Alkemistinn mbl 43 Gillz22
10.2. Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Meira »

Lækkun á mörkuðum

10.2. Allir helstu hlutabréfamarkaðir hafa lækkað í dag vegna stöðu mála í Grikklandi þar sem fjármálaráðherrar ríkja á evrusvæðinu gera auknar kröfur um niðurskurð í Grikklandi. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir