Viðskipti
| AP
| 8.1.2009
| 10:25
Tyrkir ræða við IMF um lán
Fáni Tyrklands. AP
Tyrknesk stjórnvöld og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (IMF) hófu í dag viðræður um mögulega lánveitingu til Tyrklands vegna bágrar stöðu í efnahagslífi landsins. Vonast Tyrkir til þess að fá um 25 milljarða Bandaríkjadala að láni hjá sjóðnum. Tyrkneska ríkið þarf að greiða um 50 milljarða dala í erlendum skuldum í ár.
Ef Tyrkir ná samkomulagi við IMF bætast þeir í hóp ríkja sem hafa þurft að leita til sjóðsins undanfarið. Má þar nefna ríki eins og Ísland, Úkraínu, Ungverjaland og Pakistan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















