Straumur höfðar mál gegn Fjármálaeftirlitinu
Fjármálaeftirlitið mbl.is/Eyþór
Á vef Fjármálaeftirlitsins kemur fram að ákvörðun um sektina hafi verið tekin þann 12. september sl. en Fjármálaeftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Straumur hefði brotið gegn lögum um verðbréfaviðskipti með því að tilkynna ekki innan tilskilinna tímamarka um viðskipti með eigin bréf er þeir greiddu út arð til hluthafa í formi eigin bréfa föstudaginn 16. maí 2008. Tilkynning um viðskiptin barst Fjármálaeftirlitinu mánudaginn 19. maí 2008 kl. 10:20.
Samkvæmt 126. gr. laga um verðbréfaviðskipti ber útgefanda að tilkynna samdægurs til Fjármálaeftirlitsins þegar fruminnherji hefur tilkynnt honum um viðskipti með fjármálagerninga útgefandans.
Fjármálaeftirlitið bauð bankanum að ljúka málinu með sátt þann 9. júlí 2008 en hafnaði Straumur sáttinni. Byggir málshöfðun Straums á því að arðgreiðsla til hluthafa í formi eigin bréfa verði ekki talin til viðskipta þar sem um hafi verið að ræða efndir á ákvörðun hluthafafundar um arðgreiðslur.



















