Viðskipti
| mbl
| 9.1.2009
| 17:05
Straumur niður um 27 prósent
Gengi bréfa í Straumi féll um tæp 27 prósent í kauphöllinni í dag. Lokagengi bréfanna var 1,05 krónur á hvern hlut en fór undir eina krónu á tímabili.
Flest félög sem enn eru skráð í Kauphöllina lækkuðu í dag. Bréf í Marel lækkuðu um 3,29 prósent, bréf í Bakkavör um 4,04 prósent og bréf í Össuri um 0,1 prósent.
Bréf í Century Aluminum hækkuðu þó um 3,61 prósent og gengi bréfa í Eimskipafélagi Íslands fór upp um 3,27 prósent.
OMX15 Úrvalsvísitalan stóð í 333,88 stigum í lok dags og hafði þá lækkað um 3,18 prósent. Nýja vísitalan OMX16 lækkaði um 5,51 prósent og stóð í 884,67 stigum við lokun Kauphallarinnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















