Viðskipti
| mbl
| 12.1.2009
| 17:04
Straumur hækkaði eftir hrun
Hlutabréf í Straumi hækkuðu mest allra í Kauphöllinni í dag ,7,62 prósent, eftir að hafa lækkað um 26 prósent á föstudag. Bréf í Marel hækkuðu um 1,05 prósent og bréf í Össuri hf. um 0,93 prósent.
hlutabréf í Century Aluminum, móðurfrélagi Norðuráls, féllu langmest eða um 12,89 prósent. Þá lækkuðu bréf í Atlantic Petroleum um 0,96 prósent og bréf í Eimskipum fóru niður um 0,63 prósent.
Úrvalsvísitalan stóð í tæpum 335 stigum í lok dags og hafði þá hækkað um 0,31 prósent.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















