Viðskipti
| mbl
| 13.1.2009
| 10:57
Sjóður í eigu Milestone jafnvel í þrot?
Fjárfestingasjóðurinn Kcaj, sem er í eigu Milestone, gæti farið fram á greiðslustöðvun síðar í vikunni, samkvæmt frétt Financial Times. Kcaj, sem á hlut í nokkrum breskum verslunum, var í umsjón fjárfestingafélagsins Arev en Jón Scheving Thorsteinsson er aðaleigandi Arev. Jón Scheving sagði í samtali við mbl.is í nóvember sl. að sjóðurinn væri ekki lengur í umsjón Arev.
Segir í frétt FT að hlutur Kcaj í nokkrum verslunum sé á brunaútsölu og nefnd eru til sögunnar skóframleiðandinn Jones, Mountain Warehouse og Duchamp. Arev á einnig hlut í Duchamp og Mountain Warehouse.
Tvo fyrirtæki í eigu Kcaj, Hardy Amies og Ghost, eru þegar komin í greiðslustöðvun og talið er að Blooming Marvellous eigi einnig í verulegum rekstrarerfiðleikum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















