Viðskipti
| mbl
| 13.1.2009
| 17:11
Straumur upp tvo daga í röð
Bréf í Straumi héldu áfram að hækka í kauphöllinni í dag og fóru upp um 9,73 prósent. Þau hækkuðu einnig töulvert í gær eftir að hafa hrunið niður um rúm 26 prósent á föstudag.
Önnur félög sem skráð eru í kauphöllinni lækkuðu í dag. Bréf í Bakkavör Group fóru niður um 6,84 prósent, bréf í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, lækkuðu um 6,8 prósent og Alfesca fór niður um 1,2 prósent.
Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,15 prósent og stóð í 335, 43 stigum í lok dags.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















