Háar kröfur í þrotabú Lunds
Kröfur í þrotabú danska kaupsýslumannsins Mortens Lunds eru nú orðnar yfir 120 milljónir danskra króna, jafnvirði 2,7 milljarða íslenskra króna. Meðal kröfuhafa eru Baugur Group, Straumur og Glitnir og félag sem er í eigu Janus Friis, fyrrum sameiganda Lunds að netsímafélaginu Skype.
Claus Abildstrøm, skiptastjóri þrotabúsins, segir við Berlingske Tidende að kröfuhafarnir séu ekki mjög margir, eða á milli 10 og 20. Hins vegar séu kröfurnar mjög háar eða rúmlega 120 milljónir danskra króna og þar af eigi 5-6 kröfuhafar samtals kröfur yfir 100 milljónir. Aðallega sé um að ræða félög og banka sem lánuðu Lund fé í tengslum við rekstur Nyhedsavisen.
Abildstrøm upplýsingar að Baugur, Straumur og Glitnir séu samtals með 75 milljóna króna kröfur í búið. Þá gerir félag Friis 10-11 milljóna króna kröfu. Svenn Dam og Morten Nissen Nielsen, fyrrverandi stjórnendur Nyhedsavisen, gera 10-15 milljóna kröfur en Lund var úrskurðaður gjaldþrota að þeirra beiðni.
Abildstrøm segir, að umfang gjaldþrotsins stafi af því, að Lund hafi gerst persónulega ábyrgur fyrir lánum til félaga í hans eigu. Nú hefst vinna við að meta eignir Lund, selja þær og greiða kröfuhöfum. Lund er sagður eiga hlut í fjölda fyrirtækja, bæði í Danmörku og erlendis. Þá á Lund fasteignir og listaverkasafn.
Lund keypti meirihlutann í útgáfufélagi Nyhedsavisen af Baugi fyrir ári. Honum tókst síðan ekki að fá fleiri fjárfesta til liðs við blaðið og það hætti að koma út í ágústlok.



















