Styðja við bakið á smærri fyrirtækjum
Bresk stjórnvöld kynntu í dag áætlun um að styðja við bakið á rekstri lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Meðal annars munu stjórnvöld tryggja allt að 20 milljarða punda lán frá bönkum.
Tryggingarnar frá breska ríkinu verða veittar til fyrirtækja sem hafa lent í vandræðum með aðgengi að lánsfé en eru talin lánshæf.
Peter Mandelson, viðskiptaráðherra, segir að mörg fyrirtækja séu í góðum rekstri en lánsfjárkrísan hafi valdið því að þau eiga mun erfiðara með að fá fé til rekstrar á sama tíma og bankar hafa hert skilyrði fyrir lánveitingum. Munu stjórnvöld bera áhættuna á lánum upp á allt að 10 milljarða punda en bankarnir tíu milljarða punda alls.
Að sögn Mandelson mun þetta tryggja fjárstreymi til fyrirtækja en auk þess sem fyrirtækin geta fengið lán þau geta þau breytt yfirdrætti í langtíma lán.




















