Credit Agricole kaupir Kaupþingsreikninga í Belgíu
Dótturfélag franska bankans Credit Agricole í Belgíu hefur skrifað undir samning um að kaupa bankareikninga belgískra viðskiptavina Kaupþings í Lúxemborg. Rætt var um það á sínum tíma, að Keytrade Bank, netbanki Credit Agricole, hefði áhuga á að kaupa starfsemi Kaupþings í Belgíu.
Credit Agricole í Belgíu mun fyrst yfirtaka reikninga 5000 belgískra viðskiptavina. Þegar búið er að uppfylla ýmis lögformleg skilyrði mun Keytrade Bank yfirtaka um 16 þúsund belgískra netreikninga.
Fjármálaeftirlitið í Lúxemborg frysti reikninga Kaupþings í Lúxemborg í nóvember eftir að íslenska fjármálaeftirlitið greip inn í rekstur móðurfélagsins á Íslandi. Credit Agricole sagði í dag að væntanlega yrðu belgísku reikningarnir ekki opnaðir á ný fyrr en í lok mars.
Ríkisstjórnin í Lúxemborg tilkynnti í desember að hún hefði skrifað undir viljayfirlýsingu um að selja Kaupthing Luxembourg til hóps arabískra fjárfesta.



















