Fyrsti samdráttur evrusvæðis
Í ár verður samdráttur á evrusvæðinu í fyrsta skipti frá því því var komið á fót fyrir áratug síðan. Þetta kemur fram í nýrri spá framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem birt var í morgun. Er gert ráð fyrir því að samdrátturinn í löndunum 16 sem eru á evrusvæðinu verði um 1,9% á þessu ári.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er svartsýnni en seðlabanki Evrópu var í sinni spá, sem birt var fyrir einungis einum mánuði síðan. Bankinn spáði þá 0,5% samdrætti á þessu ári. Þá er spá sambandsins mun svartsýnni en síðasta spá þess frá því nóvember á síðasta ári. Þá spáði framkvæmdastjórnin 0,1% hagvexti á evrusvæðinu á þessu ári.
Bloomberg-fréttastofan hefur eftir Joaquin Almunia, sem fer með gjaldmiðilsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, að samdráttur verði í 11 af 16 löndum evrusvæðisins.



















