Skattskuldir lenda mögulega á Landsvaka
Skattskuldirnar eru til komnar þar sem Landsvaki, sem dótturfélag gamla Landsbankans, var samskattað með bankanum ásamt öðrum dótturfélögum. Ógreiddur tekjuskattur gamla bankans, sem nú er farinn í þrot, var umtalsverður. Hugsanlega falla skuldir bankans á dótturfélögin en það er óvíst á þessari stundu.
Tryggvi Tryggvason, nýr framkvæmdastjóri Landsvaka, segir að stjórnendur fyrirtækisins vinni með stjórnvöldum að lausn málsins. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er verið að skoða þann valkost að færa rekstur peningamarkaðssjóðanna í nýtt félag en málið er örlítið snúið því Landsvaki hefur sérstakt leyfi hjá Fjármálaeftirlitinu [FME] til þess að reka verðbréfasjóði og það getur tekið langan tíma að fá nýju leyfi úthlutað. Hefur fyrirtækið óskað eftir flýtimeðferð hjá FME, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Tryggvi vill ekki staðfesta þetta. Ekki fékkst uppgefið í gær hversu há skuldin er. Ekki er mögulegt að sækja fjármagn í sjóðina til þess að standa straum af opinberum gjöldum og eiga því umræddar skuldir ekki að hafa áhrif á viðskiptavini. thorbjorn@mbl.is



















