Viðskipti
| Morgunblaðið
| 22.1.2009
| 5:30
| Uppfært
8:06
Milljarður í skattskuld
Tekjuskattsskuld gamla Glitnis vegna tekjuársins 2007 var um 4,3 milljarðar og var rúmur milljarður ógreiddur þegar bankinn fór í þrot, að sögn Árna Tómassonar formanns skilanefndar Glitnis.
Tekjuskattsskuldir gamla Landsbankans voru umtalsverðar og er ákveðin hætta á að þær lendi á dótturfélögum bankans sem eru rekin áfram með nýja bankanum – til dæmis Landsvaka. Mörg dótturfélög íslensku bankanna voru samsköttuð móðurfélögunum. Árni Tómasson segist ekki reikna með því að skattskuld Glitnis lendi á dótturfélögum nýja bankans. „Ef það er skuld þá fara þeir [RSK] bara í skuldaröð þrotabúsins eins og allir aðrir,“ segir Árni. thorbjorn@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















