Viðskipti
| AP
| 22.1.2009
| 8:33
Óbreytt verð á hráolíu
Verð á hráolíu breyttist ekkert í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York í morgun og er 43,55 dalir tunnan. Um er að ræða olíu til afhendingar í mars. Í gærkvöldi hækkaði verðið á tunnunni um 2,71 dal.
Í Lundúnum lækkaði verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í mars um tvö sent og er 45 dalir tunnan.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















