Vilja skaðabætur vegna Glitnis
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Stjórnendur Stoða, áður FL Group, telja líklegt að hægt sé að höfða skaðabótamál á hendur íslenska ríkinu vegna yfirtöku þess á 75 prósenta eignarhlut í Glitni í september síðastliðnum. Ennfremur telja þeir það hag lánardrottna sinna að félagið haldi áfram starfsemi þar sem þá sé hægt að nýta skattalegt tap síðustu ára, hindra meira verðfall á skráðum eignum og hámarka virði óskráðra eigna. Þetta kemur fram í kynningu á stöðu Stoða sem kynnt var kröfuhöfum félagsins síðastliðinn föstudag.
Vita ekki hvar skuldirnar eru
Þar kemur einnig fram að stjórnendurnir áætla að um 50 millljarðar króna til viðbótar myndu tapast ef félagið yrði sett í þrot. Stoðir hafa verið í greiðslustöðvun frá 29. september síðastliðnum þegar íslenska ríkið tilkynnti að það ætlaði að þjóðnýta 75 prósenta hlut í Glitni, sem var langstærsta eign Stoða. Félagið fór á þriðjudag fram á áframhaldandi greiðslustöðvun með stuðningi fimm stærstu kröfuhafa þess og dómari mun úrskurða um hana í dag. Samkvæmt lögum geta Stoðir ekki verið lengur í greiðslustöðvun en í hálft ár og því ljóst að um síðasta frest væri að ræða fáist hún samþykkt.Þá kemur einnig fram að stjórnendur Stoða hafi enn ekki fengið nægjanlega skýr svör frá hinum föllnu íslensku bönkum um hvort skuldir þeirra tilheyri nýju eða gömlu bönkunum. Margir stærstu kröfuhafar Stoða eru annaðhvort gjaldþrota eða í greiðslustöðvun.
30 prósentum breytt í hlutafé
Á kröfuhafakynningunni á föstudag var einnig lögð fram tillaga að endurskipulagningu félagsins. Þar er lagt til að kröfuhafarnir breyti að minnsta kosti 30 prósentum af kröfum sínum í hlutafé gegn því að allir núverandi hluthafar tapi öllum sínum hlut í félaginu. Stoðir, án tillits til stöðu dótturfélaga, skulda samtals um 252 milljarða króna.Samkvæmt tillögu stjórnendanna ætti ennfremur að auka hlutafé í Stoðum um þrjá til fimm milljarða króna þegar tækifæri væri til svo að hægt væri að styðja við helstu eignir félagsins. Kröfuhafarnir ættu þá forkaupsrétt á þessu nýju hlutafé. Hjá félaginu myndu þá starfa átta manns sem er sami fjöldi og er þar við vinnu í dag á uppsagnarfresti, en Stoðir hafa sagt upp öllu starfsfólki sínu. Með ofangreindum breytingum ætla stjórnendurnir að hægt væri að lækka skuldir félagsins úr 252 milljörðum króna í 80,5 milljarða króna sem yrði til þess að eigið fé Stoða yrði þá jákvætt um 33 milljarða króna.
Neikvætt um 111 milljarða
Samkvæmt óendurskoðuðum efnahagsreikningi sem stjórnendur Stoða unnu fyrir kynninguna er eigið fé félagsins sem stendur þó neikvætt um 111 milljarða króna. Heildareignir félagsins eru sagðar vera um 141 milljarður króna en skuldirnar á sama tíma sagðar vera 252 milljarðar króna, líkt og áður hefur komið fram. Félagið er því tæknilega gjaldþrota. Vert er að taka fram að um efnahagsreikning móðurfélagsins Stoða er að ræða, ekki samstæðureikning að meðtöldum öllum eignum félagsins.Í kynningunni segir að reynt hafi verið að selja helstu eignir félagsins, Tryggingamiðstöðina (TM) og Refresco, um nokkurt skeið. Þegar hafi komið tilboð í TM frá Kaldbaki upp á 42 milljarða króna en Landsbankinn, einn helsti kröfuhafi Stoða, hafi hafnað því. Heimildir Morgunblaðsins herma að ástæðan sé tengsl milli eigenda Kaldbaks og Stoða, en Kaldbakur, sem er meðal annars í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar, var einnig einn af stærstu eigendum Stoða fyrir bankahrun.
Skulda föllnu bönkunum mest
Stærstu kröfuhafar Stoða samkvæmt kynningargögnunum eru Landsbankinn, Kaupþing, Glitnir og þýski bankinn HVB. Stoðir voru ráðandi hluthafi í Glitni áður en bankinn féll og átti rúmlega 32 prósenta eignarhlut í þeim banka.Stærstu kröfuna á Landsbankinn, sem Stoðir skulda alls 38,8 milljarða króna með veði í eignarhlut í Atorku. Félagið skuldar Kaupþingi 29,9 milljarða króna þar sem veðið er hlutur í Glitni. Það veð er verðlaust.
Glitnir lánaði stærsta einstaka eiganda sínum einnig um 27,2 milljarða króna gegn ýmsum veðum. Meðal þeirra veða sem eru þar undir er eignarhlutur í Glacier Renewable Energy Fund sem á 40 prósent í Geysi Green Energy (GGE). GGE á síðan 32 prósenta hlut í báðum félögunum sem Hitaveita Suðurnesja var skipt upp í, HS Orku og HS Veitu.
HVB, næststærsti banki Þýskalands, lánaði síðan Stoðum alls um 22,1 milljarð króna, og aftur var veðið Glitnir. Fjórði stærsti lánveitandinn er í kynningunni sagður vera Lehman Brothers sem lánaði félaginu 11,9 milljarða króna gegn alls kyns veðum. Þá lánaði Byr sparisjóður Stoðum þrjá milljarða króna með veðum í stærstu eign sinni, fallna bankanum Glitni.
Alls er 108,8 milljarða virði af eignum Stoða, eða 77 prósent þeirra, veðsett fyrir lánveitingum samkvæmt kynningarplöggunum.
Alls hafa Stoðir lánað rúma 54 milljarða króna til félaga sem þeim tengjast vegna fjárfestingarverkefna. Þar á meðal fékk Stytta ehf., dótturfélag Stoða, 18,2 milljarða króna víkjandi lán til að kaupa hlut í Icelandic Food Group í umfangsmiklum viðskiptum í byrjun september. Í kynningunni kemur fram að heildarvirði Iceland-lánsins fari eftir því hvernig virði fyrirtækisins eigi eftir að þróast.
Baugur, stærsti eigandi Stoða, er aðaleigandi Iceland Food Group. Baugur fékk einnig sjálfur 6,2 milljarða króna víkjandi lán frá Stoðum. Víkjandi lán mæta afgangi ef fyrirtæki geta ekki greitt öllum sem eiga kröfu á þau og eru þar af leiðandi mun áhættusamari fyrir lánveitendur en önnur lán. Auk þess lánuðu Stoðir tengdum félögum á borð við Landic Properties og Teymi vegna fjárfestinga þeirra.
Stoðir gáfu út skuldabréf fyrir 65 milljarða
Stoðir hafa alls gefið út skuldabréf að andvirði um 65 milljarðar króna, en skuldabréf eru í reynd lítið annað en lán. Samkvæmt kynningunni sem kröfuhafar fengu á föstudag voru þessi skuldabréf seld í alls fjórum skuldabréfaútboðum. Glitnir, sem Stoðir áttu um þriðjung í, var umsjónaraðili tveggja útboðanna þar sem samtals voru gefin út bréf sem skiluðu Stoðum um 35,5 milljörðum króna.Landsbanki Íslands gaf einnig út skuldabréf fyrir Stoðir að andvirði 16,5 milljarðar króna og Kaupþing gaf slík út sömuleiðis fyrir um 12,9 milljarða króna. Skráð skuldabréf Stoða upp á fimmtán milljarða króna eru á gjalddaga á árinu 2009.
Mikið af þessum skuldabréfum rataði inn í peningamarkaðssjóði landsins. Þannig voru skuldabréf frá Stoðum að andvirði um 22 milljarðar króna í tveimur sjóðum Glitnis, Sjóði 1 og Sjóði 9, þegar þeim var lokað í lok september síðastliðins. Það jafngildir tæpum þriðjungi allra útgefinna skuldabréfa Stoða.



















