Eigið fé Stoða neikvætt um 111 milljarða króna

Eignir Stoða hafa  lækkað um u.þ.b. 200 milljarða síðastliðið hálft ár. Miðað við bráðabirgðamat á verðmæti eigna félagsins um sl. áramót er eigið fé Stoða neikvætt um 111 milljarða króna og því ljóst að gjaldþrot blasir við félaginu ef ekkert er aðhafst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stoðum.

Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti í gær beiðni stjórnar Stoða um framlengingu heimildar til greiðslustöðvunar til 6. apríl. Stærstu lánardrottnar félagsins höfðu áður lýst yfir stuðningi við framlengingu greiðslustöðvunarinnar

Í tilkynningu frá Stoðum segir, að verkefni stjórnenda og stjórnar Stoða síðustu mánuði hafi alfarið snúist um að verja hagsmuni lánardrottna eftir fremsta megni. Unnið hafi verið að sölu ákveðinna óskráðra eigna á viðunandi verði en án árangurs. Í öðrum tilfellum hafi verið komið í veg fyrir sölu skráðra eigna á brunaútsölu.

Þá hafi mikil vinna farið í aðstoð við félög sem séu að stórum hluta í eigu Stoða og hafi lent í rekstrarvanda vegna slæmrar stöðu Stoða og íslensks efnahagslífs. Stjórnendur Stoða hafi átt fjölda funda með lánardrottnum en það hafi torveldað framgang, að margir lánardrottnanna séu sjálfir í greiðslustöðvun eða gjaldþrotameðferð.

Á undanförnum mánuðum hefur starfssemi Stoða verið takmörkuð, skrifstofu í London lokað og öllu starfsfólki sagt upp störfum. Síðustu vikur hafa 8 starfsmenn á uppsagnarfresti verið að störfum fyrir félagið.

Á fundi með lánardrottnum þann 16. janúar sl. lýstu stjórnendur Stoða þeirri skoðun sinni að gjaldþrot þjónaði ekki hagsmunum lánardrottna. Við gjaldþrot Stoða myndi rekstur félaga í eigu Stoða komast í uppnám og lægra verð myndi fást fyrir eignir félagsins.

Stjórnendur Stoða hafa kynnt lánardrottnum drög að áætlun um endurskipulagningu fjárhags og reksturs Stoða. Áætlunin miðast við að hlutafé núverandi hluthafa verði afskrifað að öllu leyti og lánardrottnar breyti hluta skulda í hlutafé. Framlenging greiðslustöðvunarinnar gefur stjórnendum Stoða svigrúm til að vinna frekar að endurskipulagningu félagsins í nánu samstarfi við lánardrottna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK