Viðskipti
| mbl
| 23.1.2009
| 12:29
Icesave kostar Holland 230 milljónir evra
Hrun Icesave netbanka Landsbankans hefur kostað hollenska bankakerfið um 230 milljónir evra, eða um 38 milljarða króna, að því er hollenska vefsíðan DutchNews hefur eftir hollenska seðlabankanum.
Af þessum 230 milljónum koma 212 milljónir til vegna trygginga á innistæðum Hollendinga í Icesave. Afgangurinn er kostnaður sem verður til við greiðslu á þessu fé. Alls voru innistæðueigendur í Icesave í Hollandi 144.000 talsins, en innistæður að fjárhæð 100.000 evrur eru tryggðar af hollenska ríkinu og þarlendum bönkum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















