Tap Nýherja 1.201 milljón króna
Sverrir Vilhelmsson
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja segir í tilkynningu: „Rekstur og afkoma Nýherja hf. á fjórða ársfjórðungi ber merki þeirra skyndilegu sviptinga, sem urðu í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja eftir fall bankanna í október og stórfellda lækkun á verðgildi íslensku krónunnar. Sú skyndilega breyting sem varð á rekstrarumhverfinu á Íslandi hafði umtalsverð áhrif á reksturinn og nemur tap í fjórða ársfjórðungi 507 mkr og tap á árinu er 1.201 mkr.
Nýherji greip í október til fjölþættra aðgerða til að lækka rekstrarkostnað og styrkja rekstur móðurfélagsins og dótturfélaga, svo sem með tilkynningu um að lækka laun starfsmanna um 10% frá 1. febrúar og slá á frest frekari verkefnum í hugbúnaðarþróun hérlendis og erlendis. Gert er ráð fyrir að aðgerðir sem kynntar hafa verið muni leiða til yfir 600 milljóna kostnaðarlækkunar í rekstri samstæðunnar á Íslandi á árinu 2009."



















