Litlar líkur á að áætlun um Milestone gangi upp
Endurskipulagning Milestone er enn í uppnámi og engir samningar hafa tekist við sænsk fjármálayfirvöld um hana. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, segir ekkert jákvætt hafa gerst í málinu að undanförnu og hann er ekki bjartsýnn á að það breytist.
Flókin endurskipulagning Milestone var kynnt kröfuhöfum félagsins í desember en samkvæmt henni þurfa þeir að breyta stórum hluta krafna sinna í rétt til hlutabréfakaupa í félaginu. Núverandi eigendur Milestone, bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir, áttu einnig að geta eignast 13 prósenta hlut í félaginu við ákveðnar aðstæður.
Öll meginstarfsemi Milestone er í Svíþjóð og þarlend fjármálayfirvöld þurfa að samþykkja hverjir fari með virka eignarhluti í félaginu. Því er endurskipulagningin undir þeim komin.



















