Viðskipti
| AP
| 26.1.2009
| 8:41
Tap BNP Paribas 1,4 milljarðar evra
Tap franska bankans BNP Paribas nam um 1,4 milljörðum evra á fjórða ársfjórðungi, samkvæmt tilkynningu sem bankinn hefur sent til frönsku kaupahallarinnar. Ekki er um endanlegt uppgjör að ræða heldur bráðabirgðatölur vegna ástandsins á fjármálamörkuðum en bankinn vill með þessu auka gegnsæi um starfsemi sína.
Í tilkynningu BNP Paribas, sem er stærsti banki Frakklands, kemur fram að útlit er fyrir að tap fyrir skatta nemi um 2 milljörðum evra á fjárfestingabankasviði og viðskiptabankasviði. Afskriftir nema um 400 milljónum evra vegna lækkunar á hlutabréfamörkuðum.
Hagnaður BNP Paribas fyrir árið í heild nemur um þremur milljörðum evra. Bankinn mun fá að láni 2,55 milljarða evra frá frönskum stjórnvöldum en stjórnvöld eru að úthluta bönkum lánsfé í annað sinn á stuttum tíma. Með því tryggir bankinn hækkun á eiginfjárhlutfalli, Tier 1, og fer það úr 7,5% í 8%. Afkoma BNP Paribas fyrir árið 2008 verður kynnt þann 19. febrúar nk.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















