Teymi áfrýjar ákvörðun Samkeppniseftirlitsins
Árni Pétur Jónsson forstjóri Teymis
Teymi mun áfrýja ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að vísa fulltrúum Teymis úr stjórn Tals, til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Teymi vísar jafnframt á bug getgátum um að Vodafone og Tal hafi átt samráð um markaðsaðgerðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Teymi.
„Samkeppniseftirlitið birti í dag bráðabirgðaákvörðun vegna rannsóknar á meintum brotum Teymis hf. á samkeppnislögum. Vegna ákvörðunarinnar vill Teymi koma eftirfarandi á framfæri:
Við rannsókn málsins lagði Teymi til við Samkeppniseftirlitið að stjórn Tals yrði að fullu skipuð óháðum aðilum á meðan rannsókn stæði yfir. Í bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins er hins vegar kveðið á um að óháðir aðilar taki við stjórnarsetu fyrir meirihlutaeigendur félagsins eingöngu, en fulltrúar minnihluta í stjórn geti setið áfram í stjórn félagsins. Samkeppniseftirlitið vill sjálft skipa stjórnarmenn í stað þeirra sem áður sátu í stjórninni f.h. Teymis, en slíkt gæti augljóslega leitt til þess að Teymi hefði engin áhrif á stjórn Tals þrátt fyrir að eiga 51% í fyrirtækinu. Að mati Teymis er slík ákvörðun óviðunandi og því verður henni áfrýjað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála," að því er segir í tilkynningu Teymis.



















