Teymisfólki vísað úr stjórn Tals
Með bráðabirgðaákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið mælt fyrir um að fulltrúar Teymis hf. í stjórn Tals (IP-fjarskipta ehf.) víki og í stað þeirra skuli skipaðir tveir óháðir einstaklingar sem tilnefndir verða af Samkeppniseftirlitinu.
Þá eru tiltekin ákvæði í samningi Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti Vodafone lýst ógild á þeim grundvelli að þau séu andstæð ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 36/2008 Samruni Teymis hf. og IP-fjarskipta ehf. og ákvæði 10. gr. samkeppnislaga.
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit á starfstöðvum Teymis, Vodafone og Tals þann 7. janúar sl. Hafði Samkeppniseftirlitið aflað sér húsleitarheimildar í samræmi við lög og lagt var hald á gögn frá viðkomandi fyrirtækjum. Þá barst Samkeppniseftirlitinu þann 7. janúar sl. erindi frá Símanum þar sem krafist var bráðabirgðaákvörðunar m.a. vegna samnings Tals og Vodafone um aðgang Tals að farsímaneti Vodafone. Samkeppniseftirlitið tilkynnti aðilum þann 9. janúar sl. að stofnunin teldi vera fyrir hendi vísbendingar um að bið eftir endanlegri niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins gæti haft í för með sér alvarlegan og óafturkræfan skaða á samkeppni. Var hlutaðeigandi fyrirtækjum veittur kostur á að tjá sig um frummat Samkeppniseftirlitsins sem og erindi Símans.
|
|
Úrskurður Samkeppniseftirlitsins |



















