Vodafone ósátt við samkeppni
Árni Pétur Jónsson forstjóri Teymis
Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis og Vodafone, var „alveg brjálaður“ yfir því að Tal væri að taka viðskipti af Vodafone.
Samkeppniseftirlitið bendir á tölvupóst Ólafs Þórs Jóhannessonar, framkvæmdarstjóra Teymis og núverandi stjórnarmanns Tals, til Hermanns Jónassonar, fyrrverandi forstjóra Tals, dags. 18. apríl 2008, en þar segir orðrétt:
„...Náði í ÁPJ [Árni Pétur Jónsson, forstjóri Teymis og Vodafone - innsk. Samkeppniseftirlitsins] áðan og er hann í stuttu máli alveg brjálaður yfir stöðunni, sífellt verið að stela viðskiptavinum af Vodafone (ljótar brottfallstölur að birtast í gær/morgun sem er á skjön við hugmyndina um að höggva í samkeppnisaðilana)...“
Að mati Samkeppniseftirlitsins sýnir þessi tölvupóstur að Vodafone var ósátt við samkeppni frá Tali/IP-fjarskiptum. Þeirri skoðun var komið með afar skýrum hætti á framfæri við þáverandi forstjóra hins sameinaða félags að mati eftirlitsins. Telur eftirlitið að í kjölfar þessa hafi verið gerðar breytingar á viðskiptastefnu Tals til að koma í veg fyrir slíka samkeppni.
Með bráðabirgðaákvörðun í dag hefur Samkeppniseftirlitið mælt fyrir um
að fulltrúar Teymis hf. í stjórn Tals víki og í
stað þeirra skuli skipaðir tveir óháðir einstaklingar sem tilnefndir
verða af Samkeppniseftirlitinu.



















