Viðskipti
| mbl
| 28.1.2009
| 13:33
Starfsmönnum FIH sagt upp
Nærri 100 starfsmönnum danska bankans FIH Erhvervsbank var í dag sagt upp störfum en það svarar til um fimmtungs af heildarfjölda starsfmanna bankans. Bankinn var dótturfélag Kaupþings en hlutabréf FIH voru sett að veði þegar Seðlabanki Íslands lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra skömmu fyrir íslenska bankahrunið.
Stjórn bankans hafði boðað fyrr í mánuðinum, að um 100 starfsmönnum yrði sagt upp. Meðal annars er lokað heilli deild, sem sá um hlutabréfaviðskipti.
Lars Johansen, forstjóri FIH, segir við fréttavef Børsen, að ljóst hafi verið frá því október að segja þyrfti starfsmönnunum upp. Þeir fá 3-12 mánaða uppsagnarfrest.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















