Viðskipti
| mbl
| 28.1.2009
| 8:26
Vill bæta viðskiptavinum tjón vegna Madoffs
Santanter, stærsti banki Spánar, ætlar að bæta viðskiptavinum sínum tjón sem þeir hafa orðið fyrir vegna viðskipta einkabankaþjónustu bankans við bandaríska kaupsýslumanninn Bernard Madoff, sem hefur orðið uppvís að 50 milljarða dala fjárdrætti. Alls nemur tjón viðskiptavina Santander 1,38 milljörðum evra.
Hópmál var á mánudag höfðað fyrir bandarískum dómstóli gegn Santander í nafni fjárfesta, sem segjast hafa tapað peningum á fjárfesta í sjóði, sem bankinn stýrði og var m.a. í ávöxtun hjá Madoff.
Tilboð Santander um bætur á aðeins við um einstaklinga en ekki stofnanir, sem fjárfestu í sjóðnum. Talið er að tilboðið muni kosta Santander hálfan milljarð evra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















