Viðskipti
| AP
| 29.1.2009
| 8:45
Shell rekið með tapi
Tap Royal Dutch Shell, stærsta olíufélags Evrópu, nam 2,81 milljarði Bandaríkjadala á fjórða ársfjórðungi vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði á olíu og niðurfærslu eigna. Á sama tímabili árið 2007 nam hagnaður Shell 8,47 milljörðum dala.
Í tilkynningu frá Shell kemur fram að tekjur drógust saman um 24% á fjórða ársfjórðungi og námu 81,1 milljarði Bandaríkjadala. Árshagnaður Shell dróst saman um 16% og nam 26,3 milljörðum dala.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















