Viðskipti
| mbl
| 30.1.2009
| 12:34
Mesta atvinnuleysi á evru-svæðinu í tvö ár
Atvinnuleysi mældist að meðaltali 8% í desember í þeim ríkjum sem mynda myntbandalag Evrópu. Er þetta hæsta atvinnuleysishlutfall á evru-svæðinu í rúm tvö ár. Í nóvember mældist atvinnuleysið 7,9%, samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun Evrópu. Mest mældist atvinnuleysið á Spáni, 14,4%. Verðbólga mældist hins vegar 1,1% á evru-svæðinu í janúar og hefur ekki verið minni í tæp tíu ár.
Af evru-ríkjunum er atvinnuleysið minnst í Hollandi, 2,7% og Austurríki 3,9%. Í Lettlandi mældist atvinnuleysið 10,4% í desember,
Á vef BBC kemur fram að talið sé að þetta ýti undir það að Evrópski seðlabankinn muni lækka stýrivexti enn frekar til þess að láta hjól atvinnulífsins snúast á ný á svæðinu. Stýrivextir eru nú 2% en verðbólgumarkmið Seðlabanka Evrópu eru 2%.Í Bretlandi eru stýrivextir nú 1,5% og 0-0,25% í Bandaríkjunum. Á Íslandi eru þeir 18% og hvergi jafn háir í þeim ríkjum sem Ísland miðar sig helst við. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabanka Evrópu er í næstu viku en Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri, hefur ýjað að því að stýrivöxtunum verði ekki breytt fyrr en í mars hið fyrsta.
Atvinnuleysi í ríkjum Evrópusambandsins mældist 7,4% í desember en var 7,3% í nóvember. Alls eru ESB-ríkin 27 talsins en evru-ríkin 16. Slóvakía, sem tók upp evru um áramót er ekki inni í atvinnuleysistölum evru-svæðisins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















