Rauði kross Íslands tengist ekki Zimham
Í yfirlýsingu frá Rauða krossi Íslands segir að samtökin tengjast á engan hátt félagi í Panama, sem keypti hlutabréf í Landsbankanum á móti kaupréttum starfsmanna bankans. Þá gagnrýnir Rauði Krossinn á Íslandi harðlega vinnubrögð blaðamanna Morgunblaðsins.
Í Morgunblaðinu í dag kemur fram sjálfseignarsjóður í eigu Rauða krossins (beneficial owner) var skráður eigandi félagsins Zimham Corp. í Panama, sem geymdi kaupréttarbréf starfsmanna Landsbankans. Sjóðurinn heitir Aurora, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Í yfirlýsingu frá Rauða krossinum á Íslandi eru vinnubrgöð blaðamanna Morgunblaðsins sem unnu fréttina, sem birtist á blaðsíðu 16 í dag, gagnrýnd.
„Þar er alvarlega vegið að starfsheiðri Rauða kross Íslands sem á engan hátt tengist málinu. Ekki var haft samband við Rauða krossinn við vinnslu greinarinnar,“ segir í tilkynningunni.
„Rauði kross Íslands hefur engin tengsl við Landsbankann varðandi sjálfseignarsjóðinn Aurora sem skráður er í eigu Zimham Corp. í Panama samkvæmt grein Morgunblaðsins. Rauði kross Íslands vísar algerlega á bug dylgjum um að Rauði krossinn hjálpi fjárfestum við að hylja slóð gegn þóknun.
Í greininni er sagt að Rauði krossinn (Red Cross) sé skráður „beneficial owner“ sjóðsins. Ekkert lögskráð félag er til í heiminum sem ber einungis nafn Rauða krossins heldur bera viðurkennd landsfélög Rauða krossins öll nöfn þjóðlands síns. Önnur skráð samtök Rauða krossins eru Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) og Alþjóðasamband landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC).
Hér verður því ekki annað séð en um gróflega misnotkun á nafni Rauða krossins sé að ræða. Rauði kross Íslands hefur ekki séð nein gögn sem varða tilurð þessa sjóðs en mun leita réttar síns fyrir dómstólum komi í ljós að nafn félagsins hafi verið misnotað. Einnig fordæmir Rauði krossinn forkastanleg vinnubrögð Morgunblaðsins þar sem orðstír félagsins og allra sem því tengjast er lagður að veði án þess að ganga frekar í skugga um hvort Rauði krossinn tengist málinu,“ segir í tilkynningu.



















