Rauði krossinn huldi slóð Landsbankans í Panama
eftir Björgvin Guðmundsson
og Þórð Snæ Júlíusson
Sjálfseignarsjóður í eigu Rauða krossins (beneficial owner) var skráður eigandi félagsins Zimham Corp. í Panama, sem geymdi kaupréttarbréf starfsmanna Landsbankans. Sjóðurinn heitir Aurora, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Zimham var eitt félag af nokkrum sem stjórnendur gamla Landsbankans notuðu til að kaupa bréf í bankanum, meðal annars á móti kaupréttarsamningum við starfsmenn.
Ekki hafa fengist skýringar á því af hverju þessi bréf voru vistuð í svokölluðum skattaparadísum né hvers vegna gagnsæið var lítið.
Zimham Corp. fékk kennitölu á Íslandi 29. maí 2006 og umboðsaðili hér á landi var Kristján Gunnar Valdimarsson, sem þá var forstöðumaður skattasviðs Landsbankans.
Morgunblaðið hefur talað við fjölda fyrrverandi starfsmanna bankans undanfarna daga. Fáir þekkja til þessara félaga og enginn hefur viljað útskýra tilgang þeirra undir nafni. Þó er fullyrt að ekkert ólöglegt hafi átt sér stað. Félagið hafi verið notað til að verja bankann fyrir hækkunum á gengi bréfa í Landsbankanum þangað til starfsmenn nýttu sér kauprétti. Þetta hafi verið ákveðið af stjórnendum bankans og starfsmenn ekki komið þar nálægt.
Í hnotskurn
» Félag Rauða krossins var fengið til að vera skráð eigandi Zimham Corp. þó samtökin hefðu ekki umráðarétt yfir eignum Zimham.» Fyrir viðvikið fékk sjóður Rauða krossins greidda þóknun og jafnvel hagnað ef einhver yrði við slit félagsins.
» Þessi aðferð er þekkt í skattaparadísum þegar fólk vill hylja slóð sína í heimi viðskipta.
» Svona aðferðir þurfa ekki að vera ólöglegar. Þær draga hins vegar úr gagnsæi á markaðnum.



















