SAS seldi Spanair á eina evru
Norræna flugfélagið SAS hefur selt Spaniar, dótturfélag sitt á Spáni, til ferðamálaráðs Katalóníuhéraðs. Eins og tíðkast þegar verið er að selja illa stödd fyrirtæki var kaupverðið 1 evra og yfirtaka skulda.
SAS tapar 712 milljónum sænskra króna, jafnvirði 9,9 milljarða íslenskra króna og verður það tap skráð á síðasta ársfjórðungi ársins 2008. Gert er ráð fyrir að 4,9 milljarða sænskra króna tap hafi verið á rekstri SAS á síðasta ári.
Í tilkynningu frá SAS segir, að með sölunni hafi væntanlega tekist að tryggja framtíð Spanair. Muni SAS eiga lítinn hluta áfram í félaginu til að styðja þær áætlanir, sem gerðar hafi verið um reksturinn.
Spanair hefur bæði með höndum áætlunarflug, aðallega innan Spánar, og leiguflug. Félagið sá um tíma um sólarlandaflug fyrir Sumarferðir.



















