Bandarískir bankar sniðgengu heimamenn
Stærstu bankar Bandaríkjanna sem þiggja nú milljarða bandaríkjadala frá ríkinu í björgunaraðgerðum leituðust allir eftir því á síðustu sex árum að ráða til sín erlent starfsfólk í miklum mæli í hálaunastöður.
Samkvæmt AP fréttaveitunni sóttu bankarnir 12 sem fá stærstan hlut af björgunarpakka Bandaríkjastjórnarog, yfir 150 milljarða dollara, í sameiningu um vegabréfsáritun fyrir tæplega 22 þúsund erlenda sérfræðinga á síðustu sex árum. Þessir erlendu starfsmenn hafi fyllt stöður forseta bankastjórna, fyrirtækjalögfræðinga, áhættugreinenda og mannauðsstjórnenda. Meðal árslaun erlendu sérfræðinganna hafi verið 90.721 dollari (rúmar 10 milljónir kr.) sem eru tvöfaldar meðaltekjur bandarískra heimila.
Þannig fullyrðir AP að bankarnir, sem nú er haldið á floti með skattgreiðslum bandarísks almennings, hafi gagngert sótt í að ráða til sín starfsfólk erlendis frá frekar en frá Bandaríkjunum. Þetta hafi verið gert vegna þess að hægt var að greiða þeim lægri laun en innlendum sérfræðingum. Ekki fást upplýsingar um hversu margir þeirra sem sótt var um vegabréf fengu grænt ljós frá bandarískum yfirvöldum og ráðningu í kjölfarið, né heldur hversu hátt hlutfall þeirra 100 þúsund bankastarfsmanna sem hafa verið reknir í kreppunni eru útlendingar.



















