Bréf í Fortis hækka
Á grundvelli samkomulags BNP Paribas og belgíska ríkisins mun Fortis halda etir 90% eignarhlut í tryggingafélagi sínu. Reuters
Bréf í belgíska Fortis-bankanum hækkuðu mikið í belgísku kauphöllinni í morgun og hafa ekki verið hærri í þrjá mánuði eftir að belgísk stjórnvöld og franski bankinn BNP Paribas SA sömdu að nýju um kaup þess síðarnefnda á Fortis, að því er fram kemur á vef Bloomberg.
Gengi bréf Frotis hækkaði um 23% og fór upp í 1,90 evrur á hlut eftir að BNP Paribas samþykkti að kaupa smærri hlut í tryggingafélagi bankans en belgískur dómstóll stöðvaði í desember sl. ferli sem fólst í því að brjóta bankann upp og selja í hlutum. Ef það hefði gengið eftir hefði BNP Paribas, sem er stærsti banki Frakklands, eignast 100% hlut í tryggingafélaginu.
Á grundvelli samkomulags BNP Paribas og belgíska ríkisins mun Fortis halda eftir 90% eignarhlut í tryggingafélaginu, sem er hið stærsta í Belgíu.



















