Viðræður um sölu á hlut í Rio Tinto Alcan
Í gær greindi breska dagblaðið Sunday Times frá því að viðræður stæðu yfir á milli fyrirtækjanna en vísaði ekki í neinar heimildir. Samkvæmt fréttinni er samningurinn metinn á allt að 6,1 milljarð punda og ef af yrði þá væri um eina stærstu fjárfestingu kínversks fyrirtækis erlendis fyrir utan fjármálageirann.
Í tilkynningu til kauphallarinnar í Sydney í dag staðfestir síðan Rio Tinto að slíkar viðræður séu í gangi. Hins vegar sé allt óljóst um hvort af samningi verður og hann sé háður samþykki hluthafa Rio Tinto sem og yfirvalda.
Hlutabréf Rio Tinto hækkuðu talsvert í verði í kauphöllinni í Sydney eftir að tilkynningin barst eða um 6%. Heldur dró síðan úr hækkuninni rétt fyrir lokun.
Chinalco keypti á síðasta ári, ásamt Alcoa, um 12% hlut í þeim hluta starfsemi Rio Tinto sem er skráð í Lundúnum og var talið að það væri gert til þess að koma í veg fyrir yfirtöku BHP Billiton á fyrirtækinu. Var hluturinn keyptur á um 14 milljarða Bandaríkjadala.
BHP Billiton hætti hins vegar við tilboðið í Rio Tinto í nóvember vegna fjármálakreppunnar en tilboðið hljóðaði upp á 68 milljarða Bandaríkjadala. Vísaði BHP til skuldastöðu Rio Tinto en skuldir þess nema um 40 milljörðum Bandaríkjadala og er það að mestu tengt yfirtökunni á Alcan.



















