Viðskipti
| mbl
| 3.2.2009
| 9:33
| Uppfært
10:42
Gengi hlutabréfa SAS hrynur
Gengi hlutabréfa norræna flugfélagsins SAS hefur hrunið í norrænum kauphöllum í morgun en félagið birti ársuppgjör sitt í morgun. Þar kom fram að félagið tapaði jafnvirði 85 milljörðum íslenskra króna á síðasta ári og ætlar nú að grípa til umfangsmikils niðurskurðar. Einnig ætlar SAS að auka hlutafé um 6 milljarða sænskra króna.
Gengi bréfa SAS lækkaði um 22% þegar viðskipti hófust með þau í morgun en er nú 18-20% lægra en það var í gær. Gengi bréfanna er þó enn hærra en þegar það var lægst á síðasta ári.
Tilkynnt var í morgun, að Susanne Larsen hættir nú störfum sem yfirmaður SAS í Danmörku. Flemming Jensen tekur við því starfi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















