Viðskipti
| AP
| 3.2.2009
| 21:31
Jákvæðar fréttir lyftu markaðnum
Jákvæðar fréttir af fasteignamarkaði og afkomu fyrirtækja draga úr áhyggjum manna á Wall Street, að sögn AP fréttastofunnar. Vísitölur Dow Jones og S&P 500 hafa nú styrkst þrjá daga í röð.
Samtök bandarískra fasteignasala sögðu í dag að kaupendur hafi nýtt sér mikla lækkun fasteignaverðs í desember síðastliðum. Jákvæðar afkomufréttir frá lyfjafyrirtækjunum Merck & Co. og Schering Plough hleyptu lífi í markaðinn.
Dow Jones vísitalan hækkaði um 141 stig og endaði í 8.078. S&P 500 hækkaði um 13 stig og endaði í 838 og Nasdaq hækkaði um 21 og endaði í 1,516.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















