Viðskipti
| AP
| 3.2.2009
| 8:28
Litlar breytingar á olíuverði
Verð á hráolíu til afhendingar í mars hefur hækkað um 31 sent í 40,39 dali tunnan í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum í New York í morgun. Í gærkvöldi lækkaði tunnan um 1,60 dali í 40,08 dali. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um 72% frá því það fór hæst í 147,27 dali tunnan um miðjan júlí í fyrra.
Í Lundúnum hækkaði Brent Norðursjávarolía um 46 sent tunnan í morgun og er 44,28 dalir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















