SAS segir upp 3000 starfsmönnum
AP
Norræna flugfélagið SAS tilkynnti í morgun, að 3000 starfsmönnum verði sagt upp á næstu mánuðum í tengslum við sparnaðaráætlun.
Tap á félaginu nam 2,8 milljörðum sænskra króna, jafnvirði nærri 39 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi. Á sama tímabili árið áður nam tap á rekstri félagins 596 milljónum sænskra króna. Sölutekjur drógust saman úr 13 milljörðum króna árið 2007 í 12,9 milljarða króna.
Tap SAS á árinu 2008 nam 6321 milljón sænskra króna, sem svarar til 87,4 milljarða íslenskra króna miðað við gengi sænsku krónunnar í dag. Á árinu 2007 nam hagnaður félagsins 636 milljónum sænskra króna, 8,8 milljörðum íslenskra króna.
SAS boðaði einnig að dregið yrði úr rekstarumsvifum og félagið muni einbeita sér að norræna markaðnum. Verða dótturfélög seld, þar á meðal Air Greenland, BMI og Estonian Airways.



















